top of page

Hormónajóga fyrir konur - þriðjudagstímar

þri., 18. feb.

|

Jógasalur Ljósheima

Fimm vikna byrjendanámskeið í hormónajóga fyrir konur sem hefst þriðjudaginn 18. febrúar og lýkur 17. mars. Kennt er á þriðjudögum kl. 16:30 - 18:00 í Ljósheimum, Borgartúni 3.

Registration is Closed
See other events
Hormónajóga fyrir konur - þriðjudagstímar
Hormónajóga fyrir konur - þriðjudagstímar

Tími & staður

18. feb. 2020, 16:30 – 18:00

Jógasalur Ljósheima, Borgartún 3, 105 Reykjavík, Iceland

Um viðburðinn

Á þessu 5 vikna námskeiði lærir þú alla æfingaröð Dinah Rodrigues í hormónajóga fyrir konur og verður að því loknu sjálfbær með æfingarnar með aðstoð bókarinnar Hormónajóga - leið til að endurvekja hormónabúskap þinn. Bókin fæst í bókaverslunum, hjá Systrasamlaginu og í Ljósheimum. Verð fyrir námskeiðið er 15.500 kr. Skráning er hafin á yoganatura@simnet.is. Allar frekari upplýsingar hjá Rakel, hormónajógakennara, í síma 861-2706.

En hvað er hormónajóga? Hormónajóga er himnasending til kvenna 35+ sem stríða við ójafnvægi á hormónastarfseminni, hvort sem er vegna tíðahvarfa (einnig snemmbúið breytingaskeið eða ótímabært) eða af öðrum orsökum. Okkar helsta markmið í hormónajóga er að viðhalda og endurvekja framleiðslu hormóna í eggjastokkum á náttúrulegan hátt. Regluleg ástundun hormónajóga dregur úr eða kemur í veg fyrir fjölmörg einkenni breytingaskeiðsins s.s. hitakóf, skapsveiflur, pirring, höfuðverk, þurrk í leggöngum, minni kynhvöt....listinn er lengri en okkur grunar. Hormónajóga hefur einnig reynst vel til að koma jafnvægi á óreglulegar blæðingar, engar eða of miklar blæðingar, sársaukafullar blæðingar, vægt legslímuflakk, fjölblöðruheilkenni, fyrirtíðaspennu og húðvandamál svo eitthvað sé nefnt. Síðast en ekki síst hefur fjölmörgum konum tekist að verða barnshafandi með aðstoð hormónajóga. Það er því til mikils að vinna. 

Deila viðburði

bottom of page