top of page

Qigong - HEILLANDI LÓTUS - fyrir konur

þri., 29. mar.

|

Jógasalur Ljósheima og á Zoom

Heilandil, heillandi og tignarlegt!

Tickets are not on sale
See other events
Qigong - HEILLANDI LÓTUS - fyrir konur
Qigong - HEILLANDI LÓTUS - fyrir konur

Tími & staður

29. mar. 2022, 16:30

Jógasalur Ljósheima og á Zoom, Borgartún 3, 105 Reykjavík, Iceland

Um viðburðinn

Qigong formið HEILLANDI LÓTUS (Radiant Lotus Qigong fyrir Women) er eftir kínversk-kanadíska Qigong meistarann Daisy Lee þar sem hún blandar saman á aðdáunarverðan hátt austurlenskri hefð og vestrænni hugsun þannig að úr verður tignarlegt og heilandi Qigong form sem er eingöngu ætlað konum. Qigong nýtur sífellt meiri vinsælda í hinum vestræna heimi. HEILLANDI LÓTUS hefur jákvæð áhrif á hormónabúskapinn.

Æfingarnar í HEILLANDI LÓTUS eru bæði upplífgandi og tignarlegar og þær draga úr spennu. Við iðkun þeirra þróar þú með þér tilfinningu fyrir flæðinu í hreyfingunum sem hefur slakandi áhrif og þar með áhrif á þitt daglega líf.  Í æfingunum upplifir þú hvernig ró og tilfinningalegur stöðugleiki kemst á hið innra og hvernig æfingarnar auka líkamlegan styrk og mýkt. Um leið og þú róar tilfinningarnar og þjálfar hugann færir þú þig frá hugsunum sem draga úr þér orku yfir í uppbyggjandi hugsanir, næmni og styrk.

Það geta ALLAR konur gert HEILLANDI LÓTUS og engrar Qigong reynslu krafist. Hægt er að gera æfingarnar sitjandi ef það hentar betur.

4 vikna námskeið. Kennt er tvisvar í viku, á þriðjudögum og fimmtudögum 16:30 - 17:30.

Kennslan fer fram í Ljósheimum, Borgartúni 3 og á Zoom. Allir tímar eru teknir upp svo hægt er að horfa síðar.

Verrð:  25.900 Flest stéttarfélög og mörg fyrirtæki styrkja heilsueflingu.

Skráning hér eða með tölvupósti á netfangið yoganatura@simnet.is.

Nánari upplýsingar veitir Rakel Fleckenstein Björnsdóttir, jóga- og Qigongkennari í síma 861-2706.

Deila viðburði

bottom of page