Qigong - HEILLANDI LÓTUS - Radiant Lotus Qigong
fim., 02. sep.
|Jógasalur Ljósheima og á Zoom
Hefur þú upplifað það að finna svo mikla ró að svörin sem þú leitaðir að einfaldlega birtast þér? Að þú hafir loksins fundið það sem þú leitaðir að?
Tími & staður
02. sep. 2021, 18:30 – 30. sep. 2021, 19:30
Jógasalur Ljósheima og á Zoom, Borgartún 3, 105 Reykjavík, Iceland
Guests
Um viðburðinn
Fimm vikna QIGONG námskeið
HEILLANDI LÓTUS - RADIANT LOTUS QIGONG FOR WOMEN eftir Daisy Lee
Qigong formið HEILLANDI LÓTUS (Radiant Lotus Qigong fyrir Women) er eftir kínversk-kanadíska Qigong meistarann Daisy Lee þar sem hún blandar saman á aðdáunarverðan hátt austurlenskri hefð og vestrænni hugsun þannig að úr verður tignarlegt og heilandi Qigong form sem er eingöngu ætlað konum. Qigong nýtur sífellt meiri vinsælda í hinum vestræna heimi en þetta sambland af hreyfingu og slökun getur orðið það lyf sem þú þarfnast til að auka skýrleika þinn í hugsun og líkamsvitund.
Æfingarnar í HEILLANDI LÓTUS eru bæði upplífgandi og tignarlegar og þær draga úr spennu. Við iðkun þeirra þróar þú með þér tilfinningu fyrir flæðinu í hreyfingunum sem hefur slakandi áhrif og þar með áhrif á þitt daglega líf. Í æfingunum upplifir þú hvernig ró og tilfinningalegur stöðugleiki kemst á hið innra og hvernig æfingarnar auka líkamlegan styrk og mýkt. Um leið og þú róar tilfinningarnar og þjálfar hugann færir þú þig frá hugsunum sem draga úr þér orku yfir í að gera þær breytingar sem þú þráir að gera á þínu lífi.
Það geta ALLAR konur gert HEILLANDI LÓTUS og engrar Qigong reynslu krafist. Hægt er að gera æfingarnar sitjandi ef það hentar betur.
HVAR: Jógasalur Ljósheima, Borgartúni 3 og á Zoom
HVENÆR: Á fimmtudögum kl. 18:00 - 19:30 (5 skipti). 2. - 30. september
VERÐ: 17.500. Flest stéttarfélög styðja heilsueflingu
Nánari upplýsingar veitir Rakel Fleckenstein Björnsdóttir, jóga- og Qigongkennari í síma 861-2706 eða á netfangið yoganatura@simnet.is