top of page

fim., 07. okt.

|

Jógasalur Ljósheima og á Zoom

Qigong - HEILLANDI LÓTUS - Radiant Lotus Qigong

Heillandi og tignarlegar Qigong æfingar fyrir konur!

Registration is Closed
See other events
Qigong - HEILLANDI LÓTUS - Radiant Lotus Qigong
Qigong - HEILLANDI LÓTUS - Radiant Lotus Qigong

Tími & staður

07. okt. 2021, 18:00

Jógasalur Ljósheima og á Zoom, Borgartún 3, 105 Reykjavík, Iceland

Guests

Um viðburðinn

Fimm vikna QIGONG námskeið

HEILLANDI LÓTUS - RADIANT LOTUS QIGONG FOR WOMEN eftir Daisy Lee

Qigong formið HEILLANDI LÓTUS (Radiant Lotus Qigong fyrir Women) er eftir kínversk-kanadíska Qigong meistarann Daisy Lee þar sem hún blandar saman á aðdáunarverðan hátt austurlenskri hefð og vestrænni hugsun þannig að úr verður tignarlegt og heilandi Qigong form sem er eingöngu ætlað konum. Qigong nýtur sífellt meiri vinsælda í hinum vestræna heimi en þetta sambland af hreyfingu og slökun getur orðið það lyf sem þú þarfnast til að auka skýrleika þinn í hugsun og líkamsvitund.

Æfingarnar í HEILLANDI LÓTUS eru bæði upplífgandi og tignarlegar og þær draga úr spennu. Við iðkun þeirra þróar þú með þér tilfinningu fyrir flæðinu í hreyfingunum sem hefur slakandi áhrif og þar með áhrif á þitt daglega líf.  Í æfingunum upplifir þú hvernig ró og tilfinningalegur stöðugleiki kemst á hið innra og hvernig æfingarnar auka líkamlegan styrk og mýkt. Um leið og þú róar tilfinningarnar og þjálfar hugann færir þú þig frá hugsunum sem draga úr þér orku yfir í að gera þær breytingar sem þú þráir að gera á þínu lífi.

Það geta ALLAR konur gert HEILLANDI LÓTUS og engrar Qigong reynslu krafist. Hægt er að gera æfingarnar sitjandi ef það hentar betur.

HVAR: Jógasalur Ljósheima, Borgartúni 3 og á Zoom

HVENÆR: Á fimmtudögum kl. 18:00 - 19:30 (5 skipti). 

VERÐ:  17.500. Flest stéttarfélög styðja heilsueflingu

Nánari upplýsingar veitir Rakel Fleckenstein Björnsdóttir, jóga- og Qigongkennari í síma 861-2706 eða á netfangið yoganatura@simnet.is

Deila viðburði

bottom of page