top of page
Search

Hvað er hormónajóga? Viðtal við Rakel í DV 1. desember 2019

Updated: Mar 3, 2020

Hormónajóga - Leið til að endurvekja hormónabúskap þinn

Bókin, hormónajóga – leið til að endurvekja hormónabúskap þinn eftir Dinah Rodrigues í þýðingu Rakelar Fleckenstein Björnsdóttur, kom út í vor og hefur fengið frábærar viðtökur. Bókin er fáanleg í öllum bókaverslunum, á bókasöfnum og í vel völdum jógaverslunum og jógastöðvum.

Hvað er hormónajóga?

Hormónajóga er náttúrleg og heildræn meðferð sem örvar þau líffæri og þá kirta sem sjá um framleiðslu kynhormóna með því að nudda líffærin innan frá (stöður og öndunaræfingar), stýra lífsorkunni (prana og svipar til Qigong lífsorkuæfinganna) og beita jóga nidra sem hefur huglæg áhrif. Sú tegund af hormónajóga sem hér er kynnt til sögunnar samanstendur af sérstakri æfingaröð fyrir konur 35+ sem tekur rúman hálftíma að gera. Æfingarnar eru ekki flóknar en það er nauðsynlegt að gera þær reglulega, allaveganna til að byrja með og til þess þarf þolgæði.

Upphafskona hormónajóga er Dinah Rodrigues frá Brasilíu. Þessi 92 ára gamla kona er besta auglýsingin fyrir árangurinn af æfingunum. Dinah byggir æfingarnar á áratugareynslu af jógaiðkun, kennslu og rannsóknum tengdum lífeðlisfræði. Rakel nam fræðin hjá Dinah í Þýskalandi og er fyrsti, og eini kennarinn hér á landi, sem hefur réttindi til að kenna aðferðafræði hennar.

Dinah hefur þróað þrennskonar hormónajóga: fyrir konur, eins og það sem kynnt er í bókinni, fyrir karla (streitulosandi) og fyrir sykursjúka. Í skoðun er að Yoga Natura ehf. gefi þessar bækur út í náinni framtíð.

Kemur í veg fyrir einkenni eða dregur úr

Regluleg ástundun æfinganna kemur í veg fyrir eða dregur úr margvíslegum einkennum sem gjarnan eru fylgifiskar breytingaskeiðisins. Einkennin eru mun fleiri en okkur grunar en þekktust eru hitakóf, þurrkur í leggöngum, þreyta, pirringur, svefntruflanir og minni kynhvöt. Í kringum fertugt fer að draga úr virkni eggjastokkanna og framleiðsla estrógens og prógesteróns minnkar. Fram að tíðahvörfum sér estrógen kynhormónið í líkamanum um að vernda konur. Við tíðahvörf er hætta á að þessi vernd hverfi að mestu þegar magn estrógens minnkar. Þess vegna er svo mikilvægt að við viðhöldum eða endurvekjum hormónaframleiðsluna á náttúrulegan hátt.

Hvaða konur ættu að stunda hormónajóga?

Hormónajóga er himnasending til kvenna á breytingaskeiði en það hefur líka reynst konum á snemmbúnu eða ótímabæru breytingaskeiði vel. Einnig konum sem eru með óreglulegar blæðingar, engar eða of miklar blæðingar, sársaukafullar blæðingar, vægt legslímuflakk, fjölblöðruheilkenni, fyrirtíðaspennu og húðvandamál svo eitthvað sé nefnt. Síðast en ekki síst hefur fjölmörgum konum tekist að verða barnshafandi með aðstoð hormónajóga.

Rakel vill hvetja þær konur sem eru að huga að barneignum, og það virðist ekki ætla að ganga eins og vonir stóðu til, að skoða hormónajóga. Reynslan sýnir að fjölmargar konur hafa orðið þungaðar með því að stunda hormónajóga reglulega og er Dinah Rodrigues stolt af því að „eiga“ jógabörn út um allan heim. Í hormónajóga gerum við líka streitulosandi æfingar og allt hjálpar þetta.

Til að halda utan um útgáfu bókararinnar var fyrirtækið Yoga Natura ehf. stofnað en það er í eigu Rakelar Fleckenstein Björnsdóttur, hormónajóga- og hathajógakennara og Thomasar Fleckenstein, ljósmyndara.

Auk þess að gefa út bækur er Rakel með námskeið, bæði fyrir byrjendur og lengra komna, í hormónajóga en námskeiðin hafa verið kennd í Ljósheimum frá upphafi. Fyrirtækið heldur einnig utan um sýningar á verkum Thomasar og er hugmyndin að gefa út bók með ljósmyndum eftir hann á næstunni.

Nánar má fræðast um hormónajóga á facebook.com/hormonajoga og á netfanginu yoganatura@simnet.is.



27 views0 comments

Recent Posts

See All
bottom of page