top of page
Search

Óttaðist óvissuna við breytingaskeiðið. Viðtal við Rakel hormónajógakennara í Fbl. 28. des. 2019.

Updated: Mar 3, 2020

Rakel Fleckenstein Björnsdóttir er eini hormónajógakennari landsins. Hún segir jógaæfingarnar hafa reynst konum á breytingaskeiðinu sérlega vel. „Þegar ég uppgötvaði hormónajóga var ég farin að finna aðeins fyrir einkennum breytingaskeiðsins og óttaðist satt að segja þetta óvissutímabil sem framundan var. Sumar konur skauta léttilega í gegnum breytingaskeiðið en aðrar eru undirlagðar í mörg ár. Mér fannst lítið í boði til að mæta þessu tímabili með gleði og af skynsemi annað en hormónalyf sem ég kæri mig ekki um. Hormónajóga kom því eins og himnasending inn í mitt líf,“ segir Rakel en hún er eini hormónajógakennari landsins. Hún kynntist þessu jóga hjá þýskum lækni sem hafði stunda það með góðum árangri en hvað nákvæmlega er hormónajóga? „Hormónajóga er sérstök æfingaröð sem hefur ekki eingöngu skilað konum út um allan heim góðum árangri heldur líka körlum og sykursjúkum . Um er að ræða einfaldar, mjúkar jógaæfingar og ákveðna öndunar- og orkutækni, , sem örvar framleiðslu hormóna í líkamanum. Æfingarnar í hormónajóga henta konum á breytingaskeiði einstaklega vel. Sjálf er ég á breytingaskeiðinu, 54 ára og því ágætis kandidat. Æfingaröðin tekur um 35 mínútur og hægt að gera þær heima eða mæta í opna tíma til að fá stuðning við eigin iðkun og félagsskap frá öðrum,“ segir Rakel. Höfundur hormónajóga er frá Brasilíu og heitir Dinah Rodrigues. „Þessi 92 ára gamla orkumikla kona kom hingað til lands í maí sl. í tilefni útgáfu bókarinnar Hormónajóga – leið til að endurvekja hormónabúskap þinn, sem ég þýddi og gaf út á íslensku. Ég hef áður þýtt tvær bækur, Þarmar með sjarma (2015) og Leyndarmál húðarinnar (2016) þannig að mér fannst liggja beint við að þýða bókina sjálf. Dinah hefur einnig skrifað bækur um hormónajóga fyrir karla og hormónajóga fyrir sykursjúka og munu þær koma út á íslensku á næsta ári,“ upplýsir Rakel og bætir við að fjölmargir geti nýtt sér hormónajóga, sér til heilsubótar. „Það hentar konum sem eru með ójafnvægi á hormónastarfseminni. Þá erum við að tala um konur á breytingaskeiði, konur með óreglulegar blæðingar, engar eða of miklar blæðingar, sársaukafullar blæðingar, vægt legslímuflakk, fyrirtíðaspennu og húðvandamál svo eitthvað sé nefnt. Síðast en ekki síst hefur fjölmörgum konum tekist að verða barnshafandi með aðstoð hormónajóga. Best er ef þær hefja iðkun snemma í ferlinu, eða helst um leið og þær sjá að þetta virðist ekki ætla að ganga eins og til var ætlast. Það að stunda hormónajóga örvar hormónaframleiðslu í eggjastokkunum, dregur úr streitu og gerir líkamann betur í stakk búinn til að takast á við þungun, hvort sem hún verður af sjálfu sér eða fyrir tilstilli tæknifrjóvgunar. Í Tékklandi stunda konur sem stríða við ófrjósemi hormónajóga samkvæmt læknisráði,“ segir Rakel. Þá segir hún að ástundun þess geti dregið úr einkennum breytingaskeiðs karla. „Þar er ég að tala um hluti eins og minni kynhvöt, minni kyngetu, minnkandi hár- og skeggvexti, vöðvarýrnun og svefnleysi svo eitthvað sé nefnt. Hormónajóga hefur einnig reynst vel fyrir sykursjúka en með reglulegri ástundun þess er hægt að ná betra jafnvægi á blóðsykurinn, æfingarnar eru góð forvörn gegn erfðafræðilegum þáttum, draga úr streitu, koma jafnvægi á hormónastarfsemina og auka kynorku og frjósemi,“ bætir hún við. Rakel fékk kennararéttindi til að kenna hormónajóga fyrir konur hjá höfundinum sjálfum í Þýskalandi sumarið 2018 og síðan réttindi til að kenna hormónajóga, hjá Dinah sjálfri, fyrir sykursjúka í Prag í sumar. „Næsta sumar er stefnan sett á að fá réttindi til að kenna hormónajóga fyrir karla og þá verð ég komin með fullt hús. Ég er eini kennarinn á Íslandi sem er með réttindi til að kenna hormónajóga Dinah Rodrigues og kenni í Ljósheimum,“ segir Rakel.

Myndin sem hér fylgir er tekin á Sardiníu í október 2019. Á myndinni talið frá vinstri: Rakel, Thomas og Larissa en Thomas og Larissa eru hormónajógakennarar í Straussberg í Þýskalandi.








8 views0 comments

Recent Posts

See All
bottom of page